Bergþóra Kristinsdóttir tekur við sem framkvæmdastjóri Malbikstöðvarinnar
Bergþóra Kristinsdóttir verkfræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Malbikstöðvarinnar. Með Lilju Samúelsdóttur fjármálastjóra við hlið sér verður hún í forsvari fyrir það sem er líklega fyrsta malbiksfyrirtækið á Íslandi þar sem konur skipa tvö æðstu stjórnendasætin.
Bergþóra tekur við af Vilhjálmi Þór Matthíassyni, stofnanda Malbikstöðvarinnar, sem stýrt hefur fyrirtækinu í 22 ár. Vilhjálmur lætur af störfum sem framkvæmdastjóri en verður áfram starfandi stjórnarformaður.
„Ég byrjaði ferilinn á því að skoða og meta mismunandi malbikstegundir í mínu meistaranámi í Verkfræði, síðan hef ég hannað vegi, unnið við að meta endingu gatna og vega og verið ráðgefandi varðandi endurgerð og viðhald gatna. Ég hef einnig komið að eftirliti við vega- og gatnagerð um land allt. Það er síðan skemmtilegt að loka hringnum með því að taka núna þátt í að framleiða og leggja sjálf malbik“ segir Bergþóra.
Frá Vegagerðinni til Malbikstöðvarinnar
Bergþóra hefur frá árinu 2020 verið framkvæmdastjóri þjónustusviðs Vegagerðarinnar, þar sem hún var hluti af yfirstjórn stofnunarinnar og bar ábyrgð á samræmingu á þjónustu og rekstri samgöngukerfisins auk, upplýsingagjafar og rekstri almenningssamgangna þar á meðal ferjusiglinga, ríkisstyrkts innanlandsflugs og Loftbrúar.
Þar á undan starfaði hún í yfir tvo áratugi hjá Eflu síðustu árin sem fagsviðsstjóri umferðar og skipulags. Á þeim tíma kom hún m.a. á framkvæmdaeftirliti með Bolungarvíkurgöngum og Vaðlaheiðargöngum, endurnýjun flugbrauta á Keflavíkurflugvelli og ástandsskoðun og útboðum vegna gatnaviðhalds hjá Reykjavíkurborg, Garðabæ, Kópavogi, Mosfellsbæ og Vegagerðinni. Alls hefur hún 27 ára reynslu af samgöngu- og innviðaverkefnum.
Konur í brúnni
Malbiksgeirinn hefur löngum verið karlaveröld. Að tvær konur, framkvæmdastjóri og fjármálastjóri, stýri nú einu af stærri malbiksfyrirtækjum landsins er nýlunda, þótt hvorugri finnist það sérstaklega merkilegt.
„Ég er ekki ráðin af því að ég er kona, ég er ráðin af því að ég kann þetta,“ segir Bergþóra. „En ef einhver ung stelpa sér þetta og hugsar að verkfræði og malbik séu líka fyrir hana, þá er það bara bónus.“
Spennandi tímar framundan
Vilhjálmur segir tímasetninguna enga tilviljun.
„Innviðaskuldin á Íslandi er orðin að blöðru sem er að springa. Ástand veganna er verra núna en árin eftir hrunið á fjármálamörkuðunum 2008 og ég hélt satt best að segja að ég myndi aldrei sjá það aftur á mínum ferli. Það þýðir að fram undan er stærsta uppbyggingarskeið sem þessi geiri hefur séð lengi og Malbikstöðin ætlar að vera eitt af lykilfyrirtækjunum í því. Ég er kominn að endamörkum áhrifa minna sem framkvæmdastjóri, næsta kafla skrifar Bergþóra með starfsfólkinu okkar, sem er það allra flottasta sem ég hef unnið með á ferlinum.“
