ÞJÓNUSTA

MALBIKUN OG ÞJÓNUSTA

Öflugur og nútímalegur tækjakostur, vel þjálfað og hæft fagfólk í hverju starfi og á hverju tæki tryggja fyrirtaks þjónustu og malbik sem svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum.

MALBIKSFRÆSUN

Þegar jarðvinna eða jarðvegsvinna undir malbikun er góð er mögulegt að endurnýja malbikið oft án þess að þurfa að vinna í undirlaginu. Þess vegna bjóðum við ekki aðeins upp á verktakaþjónustu við jarðvinnu og malbikun, heldur erum við með fyrsta flokks tækjakost fyrir malbiksfræsun. Með malbiksfræsun er hægt að endurnýta hluta af þeim efnum sem notuð voru áður, leggja nýtt malbik og skila nýju verki án þess að hrófla þurfi við undirlaginu.

MÓTTAKA MALBIKS

Við tökum á móti upprifnu og fræstu malbiki á stöðinni okkar að Esjumelum. Þar er malbikið endurunnið ásamt því malbiki sem fellur til við framleiðslu er endurnýtt.

Móttaka malbiks

UNDIRBÚNINGUR

Það er mikilvægt að vinna jarðveg undir malbik vel til að tryggja gæði vega og stíga. Þess vegna bjóðum við upp á vandaða verktakaþjónustu við jarðvinnu og malbikun.

framkvæmdir 
framundan?

Hafðu samband og við svörum um hæl