Á myndinni frá vinstri: Vilmundur Geir Guðmundsson, Bergþóra Kristinsdóttir og Jón Grétar Heiðarsson.
Malbikstöðin er meðal Framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo árið 2026. Við erum stolt og þakklát fyrir viðurkenninguna sem félagið hefur hlotið samfellt frá árinu 2016.
Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem búa við traustan rekstur og uppfylla ströng skilyrði Creditinfo um fjárhagslegan styrk og árangur.
Að baki þessum árangri stendur öflugur hópur starfsfólks, traust viðskiptavina og gott samstarf við samstarfsaðila okkar. Við þökkum ykkur öllum fyrir að eiga þátt í þessari vegferð og hlökkum til verkefnanna fram undan.
