Afturelding og Malbikstöðin framlengja sögulegt samstarf

Afturelding og Malbikstöðin hafa framlengt samstarfssamning sinn til næstu þriggja ára. Um er að ræða stærsta samning í sögu knattspyrnudeildar Aftureldingar og markar hann áframhaldandi öflugt samstarf félaganna.

Heimavöllur Aftureldingar hefur undanfarin þrjú ár borið nafnið Malbikstöðin að Varmá og mun halda því nafni að minnsta kosti næstu þrjú árin. Samningurinn tryggir þannig stöðugleika og áframhaldandi uppbyggingu í starfi félagsins.

Fulltrúar Malbikstöðvarinnar lýsa yfir mikilli ánægju með samninginn og þakka Aftureldingu fyrir farsælt og ánægjulegt samstarf undanfarin ár.

Það ríkir mikil tilhlökkun fyrir komandi tímabili og eru stuðningsmenn hvattir til að mæta á völlinn og taka þátt í stemningunni.

Sjáumst á Malbikstöðinni að Varmá í sumar!

Á myndinni eru Einar Ingi Hrafnsson, framkvæmdastjóri Aftureldingar, og Vilhjálmur Matthíasson, eigandi Malbikstöðvarinnar.

framkvæmdir 
framundan?

Hafðu samband og við svörum um hæl