ÞJÓNUSTA BYGGÐ Á
TRAUSTUM GRUNNI
Um okkur
Fagverk er verktakafyrirtæki sem sérhæfir sig einkum á þremur sviðum verktakavinnu, malbikun, malbiksfræsun og jarðvinnu fyrir malbikunarframkvæmdir. Við erum sérfræðingar með áratuga reynslu og veitum viðskiptavinum okkar úrvals þjónustu. Stefna okkar er að vera þitt fyrsta val þegar kemur að því að leita eftir verktaka til þjónustu á þessum sviðum.
Við leggjum áherslu á að vinna öll okkar verkefni af ábyrgð, fagmennsku og heiðarleika. Fagverk býr yfir fyrsta flokks tækjakosti og hjá fyrirtækinu starfar fyrsta flokks fagmenn með mikla reynslu á sérsviðum fyrirtækisins.
Við rekum okkar eigið verkstæði og tryggjum þannig að öll okkar tæki séu í besta mögulega standi, sem gerir okkur kleift að veita fyrirtaks þjónustu með öryggið í öndvegi.
Við leggjum metnað í að skapa faglegt og hvetjandi vinnuumhverfi ásamt því að viðhafa menningu byggða á virðingu, metnaði og liðsheild.
Stjórnendur
Og verkstjórar




